Til baka

VETRARRÍKI - ljósmyndasýning

VETRARRÍKI - ljósmyndasýning

ÁLFkonur halda í tólfta sinn ljósmyndasýninguna Vetrarríki við LYST kaffihúsið.
Í tólfta sinn bjóða ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús uppá ljósmyndasýningu við útsvæðið og veitingasöluna í garðinum.
Að þessu sinni takast þær á við vetrarríki, -birtu og form sem fanga augað yfir köldustu mánuðina.
Sýning hefst um sjómannadagshelgina og ÁLFkonur tileinka sýninguna íslenskum sjómönnum sem öðrum fremur kljást við vetrarstorma og veðrabrigði í störfum sínum.
ÁhugaLjósmyndaraFélag fyrir konur :
ÁLFkonur er hópur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli
og höfum við starfað saman sem hópur frá árinu 2010
Við höfum haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi.
Að þessu sinni eru þátttakendur :
Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Helga Haraldsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.
Hvenær
3. júní - 31. maí
Hvar
Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri
Verð
Ókeypis aðgangur