Til baka

Vetrarsólstöðutónleikar - Brasskvintett Norðurlands

Vetrarsólstöðutónleikar - Brasskvintett Norðurlands

Hátíðleg jólalög á stysta degi ársins

Fagnaðu vetrarsólstöðum með hátíðlegri jólatónlist! Þann 21. desember, þegar dagurinn er stystur og myrkrið mest, býður Minjasafnið á Akureyri upp á tónleika í tilefni þess að ljósið fer að ná yfirhöndinni.

Brasskvintett Norðurlands, framkallar hátíðlega tóna:
• Vilhjálmur Ingi Sigurðarson – trompet
• Sóley Björk Einarsdóttir – trompet
• Kjartan Ólafsson – horn
• Þorkell Ásgeir Jóhannsson – básúna
• Helgi Þ. Svavarsson – túba

Komdu og leyfðu tónlistinni að lýsa upp dimmasta dag ársins!

Hvar: Minjasafnið á Akureyri
Hvenær: Sunnudaginn 21. desember kl. 14.
Aðgangur ókeypis, en frjáls framlög vel þegin.

Hvenær
sunnudagur, desember 21
Klukkan
14:00-14:45
Hvar
Minjasafnið á Akureyri
Verð
Ókeypis - frjáls framlög