Til baka

Vísindasmiðjur fyrir börn á aldrinum 8-12 ára

Vísindasmiðjur fyrir börn á aldrinum 8-12 ára

Ein smiðja á mánuði, samtals fimm smiðjur.
Frá september fram í janúar ætlar Audrey Louise Matthews lektor við Háskólann á Akureyri að halda vísindasmiðjur fyrir börn á aldrinum 8-12 ára einn laugardag í mánuði. Mismunandi þema er í hverri smiðju. Audrey er einstaklega skemmtileg og fróð um fjölbreytta kima vísindanna. Hún er enskumælandi svo smiðjurnar fara að mestu fram á ensku. Þátttaka er ókeypis.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands.
Einungis 10 börn komast á hverja smiðju svo það er um að gera að skrá litla vísindafólkið snemma. Skráning fer alfarið fram í gegnum netfangið eydisk@amtsbok.is
Vísindasmiðja desembermánaðar fjallar um hvernig eðlisfræði er notuð til að smíða lítið farartæki með teygjum og öðru, hér er gróf dagskrá:
Eðlisfræði - The Egg Race/Gjafakeppnin!
13.00 – 13.15 Kynning á “The Egg Race” og eðlisfræði
13.15 – 13:50 Vísindatilraun: Smíðum lítið fartæki úr teygjum og öðrum efnivið á staðnum
13:50 – 14.00 Hlé
14:00 – 14.20 Faratækin prufukeyrð og betrumbætt
14.20 – 14.50 Egg Race
14.50 – 15.00 Yfirferð og áskorun
Hvenær
laugardagur, desember 9
Klukkan
13:00-15:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri