Til baka

VÖK - Útgáfutónleikar

VÖK - Útgáfutónleikar

Hljómsveitin Vök með Útgáfutónleika.

Hljómsveitin Vök sendir frá sér sína þriðju hljómplötu.

Þetta er fyrsta breiðskífa Vakar frá því að þau sendu frá sér
verðlaunaplötuna, In the Dark, árið 2019 en sú plata færði
hljómsveitinni þrenn verðlaun á Íslensku Tónlistarverðlaununum.

Vök hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá því að þau unnu
Músíktilraunir 2013 og hafa gefið út tvær stuttskífur (EP) og
breiðskífuna, „Figure“ sem var einnig valin ‘plata ársins 2017’ á
Íslensku Tónlistarverðlaununum.

Vök hafa löngu getið sér gott orð fyrir draumkenndan og lagskiptan hljóðheim þar sem electro og indie poppi er blandað saman.

Þríeykið sem myndar Vök eru Margrét Rán söngkona og lagahöfundur, Einar Stef
gítar- og bassaleikari og Bergur Dagbjartsson trommuleikari.

 

Hvenær
laugardagur, október 22
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900