Til baka

Ýmir Grönvold - Milli fjalls og fjöru

Ýmir Grönvold - Milli fjalls og fjöru

Sýningaropnun í Listasafninu á Akureyri
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 30. ágúst, kl. 15 verður opnuð sýning Ýmis Grönvold, Milli fjalls og fjöru, í sal 09 í Listasafninu á Akureyri.
 
Verk Ýmis eru innblásin af náttúrunni s.s. fjöllum, fossum, hafi, dýralífi og plöntum. Oft eru þessi viðfangsefni túlkuð á frjálslegan og persónulegan hátt. Fyrri sýningar hans hafa beinst að umbreytingu og tengslum, með áherslu á vöxt og hreyfingu innan náttúrulegra hringrása. Sýningin Milli fjalls og fjöru byggir á þessum grunni. Hún rannsakar rýmið á milli hins fasta og breytilega, þar sem náttúrulegir ferlar, litir og áferð mætast og til verða fjölbreyttar myndrænar lýsingar á umbreytingu og tengslum.
 
Ýmir Grönvold býr og starfar í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í myndlist 2018 og var í skiptinámi við KABK og Konunglegu listaakademíuna í Den Haag. Ýmir vinnur með málverk, teikningar og fundin efni og hefur í verkum sínum rannsakað fjölbreytt þemu, allt frá Tarot og andlegri leit til landslags og náttúrutúlkunar.
Hvenær
laugardagur, ágúst 30
Klukkan
15:00
Hvar
Kaupvangsstræti 8, Akureyri, Iceland
Verð
Enginn aðgangseyrir