Í tilefni Lúsíudags verður ofið úr ljóðum og tónum í stofu Davíðshúss á ljóðastund með Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur.
Steinunn les og úr nýútkomini bók sinni, Yndishrúga. Einnig verður flutt tónverkið Leçon de ténèbres, harmljóð fyrir fiðlu, selló og þrjá hluti eftir Steinunni, auk tveggja heimatilbúinna jólaljóðalaga. Þar af er frumflutningur annars lagsins.
Steinunn leikur á selló en með henni verður Sophia Fedorovych sem leikur á fiðlu.
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1981. Hún er sellóleikari, tónskáld og ljóðskáld. Hún leitar víða fanga í ljóðum sínum; bregður fyrir sig rímnakveðskap og syngur jafnvel á frönsku í stíl við franskan chanson – sem er hin eiginlega þjóðlagahefð Frakka á 20. öld.
Yndishrúga er fimmta bók Steinunnar sem áður hefur gefið út bækurnar; Satanía hin fagra 2021, Vél 2020, Fugl/Blupl 2018 og USS árið 2016.
Hvar: Davíðshús Bjarkarstíg 6
Hvenær: Laugardaginn 13. desember kl. 17
Konfekt í skálinni og notalegt andrúmsloft.