Til baka

Kjarnaskógur - Gamli - Fálkafell - Súluvegur

Úr Kjarnaskógi er hægt að velja um nokkrar leiðir, algengust er sú sem byrjar fyrir neðan Kirkjustein, þar sem gengið er upp brattan hrygg, Kjarnakamb, upp á klappirnar. Þaðan er gengið eftir jökulsorfnum klöppum í gegnum skógarbelti og upp að Gamla sem er skáli skátanna.

Sú leið sem hér er sýnd er dálítið norðar og aðeins lengri (munar um 2 km), gengið er eftir stígnum sem liggur fyrir ofan Hamra í átt að Naustaborgum, þaðan er beygt af leið upp á hól og inn í skóginn eftir slóða sem endar við Gamla. Leiðin er merkt "Gamli", sjá einnig kort hér fyrir neðan.

Frá Gamla er hægt að taka auka krók og fara að Steinmönnum, stórum grjóthnullungum ofar á svæðinu. Sú leið er ansi brött og getur verið hál í bleitu og eins frosti.

Að öðrum kosti liggur leiðin áfram til norðurs eftir klettabeltinu og upp að Fálkafelli, öðrum skála á vegum skátanna. Þaðan er gott útsýni yfir bæinn og út og yfir fjörðinn.

Frá Fálkafelli er hægt að velja um tvær leiðir annars vegar fjallahjólabrautina niður að bílastæðinu fyrir gönguleiðina upp á Súlur eða vegslóðann sem liggur fram hjá stórri vörðu og áfram niður á Súluveg rétt hjá hitaveituskúrum Norðurorku (sú leið er sýnd á kortinu).

Ef ferðin hefst Glerárdalsmegin er algengast að byrja við Súluveg við hitaveituskúra Norðurorku og síðan gengin samkvæmt leiðarlýsingunni hér fyrir ofan í öfugri röð.

Þessi leið liggur um fjölbreytt undirlag: vegslóða, kindagötur, klappir, brýr, mýrar og móa. Stór hluti leiðarinnar liggur ofan á klettabeltinu fyrir ofan Naustaborgir og Kjarnaskóg sem býður upp á stórfenglegt útsýni.

Athugið að leiðin er bæði notuð af gangandi og hjólandi.

Skátaskálarnir eru læstir og nýtast í skátastarfi en sjálfsagt er að nota pallinn við Gamla eða skjól við húsin sem áningarstað svo lengi sem það truflar ekki skátastarfið.

Áhugaverðir staðir: Skátavarðan, Fálkafell og Gamli (hús skátanna), útsýnis staðir og tilkomumikil leið ofan á klettabelti, Kjarnaskógur.

Hér má nálgast GPX hnit af leiðinni

Sjá einnig á Wikiloc og á Google Earth  

Upphafspunktur göngunnar Kjarnarskógarmegin er á kortinu hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar

Lengd: 8,3 km (Önnur leiðin)
GPX hnit (niðurhal)

Tími: 2 -3 klst ganga
Tími: 30 - 60 mín hjól

Gönguhækkun: 390 m

Undirlag: Malarslóðar, kindagötur (moldarslóði), mýri, klappir

Upphaf/Endir: Súluvegur eða Kjarnakot (Kjarnaskógi)

Bílastæði: Við Súluveg eða við Kjarnakot (Kjarnaskógi)

Áhugaverðir staðir: Fálkafell, Gamli, Útsýni, Kjarnaskógur.