Til baka

Akureyrarvaka

Akureyrarvaka

Akureyrarvaka er árleg bæjarhátíð, sem haldin er helgina sem er næst afmæli Akureyrarbæjar þann 29. ágúst. Árið 2020 mun hátíðin standa í þrjá daga í stað tveggja, 28.-30. ágúst, vegna breyttra aðstæðna.

Akureyrarvaka er árleg bæjarhátíð, sem haldin er helgina sem er næst afmæli Akureyrarbæjar þann 29. ágúst. Árið 2020 mun hátíðin standa í þrjá daga í stað tveggja, 28.-30. ágúst, vegna breyttra aðstæðna.

Óskað er eftir þátttöku bæjarbúa í komandi afmælisveislu Akureyrarbæjar og er hún tilvalið tækifæri fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að láta ljós sitt skína í fjölbreyttum viðburðum helgarinnar. Verkefnastjórn Akureyrarvöku er í höndum Sigríðar Örvarsdóttur og Almars Alfreðssonar og taka þau við hugmyndum, fyrirspurnum  og öðrum ábendingum á netfangið akureyrarvaka@akureyri.is eða í síma 460-1157.

Síðasti dagur til að vera með í prentuðu kynningarefni er 10. ágúst. Hægt er að senda inn efni til þátttöku í netútgáfu til og með 25. ágúst.

*Vakin er athygli á að áfram verður farið eftir viðmiðunum og settum reglum almannavarna, varðandi fjöldatakmarkanir, vegna Covid-19. Þá skal tveggja metra nándarreglan virt eins og hægt er og áfram er almenningur hvattur til sérstaks hreinlætis og handþvottar.

Heimili Akureyrarvöku á samfélagsmiðlum er að finna á facebook síðu Akureyrarbæjar og á Instagram. Einnig hvetjum við gesti Akureyrarvöku til að nota myllumerkin #akureyrarvaka #hallóakureyri og #akureyri

Hvenær
28. - 30. ágúst
Hvar
Akureyri
Nánari upplýsingar