Til baka

Barnamenning Síðuskóla 2026

Barnamenning Síðuskóla 2026

Góðgerðarhátíð - Allur ágóði kaffihússins fer í að gleðja íbúa á Lögmannshlíð!

Verið öll velkomin á barnamenningarhátíð þar sem við komum saman til að gleðjast, skapa og styðja gott málefni. Á staðnum verður sýning á fjölbreyttum verkum nemenda. Njótið þessa einstaka viðburðar með okkur!

Dagskrá hátíðarinnar:

Listasýning: Sýning á verkum nemenda á miðstigi. Þar sýna nemendur sköpun sína og vinnu með fjölbreytt efni og miðla.

Skemmtiatriði á sviði: Nemendur sýna hæfileika sína í söng, leiklist, dansi eða annars konar sviðslistum.

Sköpunarsmiðja: Opið rými þar sem allir eru velkomnir til að vinna saman að skapandi verkefnum. Í sameiginlegri listsköpun fá þátttakendur tækifæri til að kynnast hvort öðru á nýjan hátt, deila hugmyndum og upplifa gleði sköpunarinnar saman.

Kaffihús: Kaffihúsið er rekið af nemendum sem hluti af viðburðinum. Allur ágóði kaffihússins fer í að gleðja íbúa á Lögmannshlíð.

 

Hvenær: miðvikudaginn 22. apríl

Klukkan: 14:00-16:00

Hvar: Síðuskóli, Bugðusíða, Akureyri

Verð: Aðgangseyrir ókeypis en hægt að kaupa sér kaffi og meðlæti.

 

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
miðvikudagur, apríl 22
Klukkan
14:00-16:00
Hvar
Síðuskóli
Verð
Enginn aðgangseyrir