Til baka

Barnamenningarhátíð á Akureyri 2024

Barnamenningarhátíð á Akureyri 2024

Börn og ungmenni eru hvött til virkrar þátttöku í menningarstarfi og þeim gefin tækifæri til að njóta lista og menningar.


Viðburðadagatal hátíðarinnar má finna HÉR


Markmið Barnamenningarhátíðar á Akureyri er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og veita þeim tækifæri til að njóta lista og menningar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem efla sköpunarkraftinn. Árið 2024 er allur aprílmánuður helgaður Barnamenningarhátíð á Akureyri.

Leiðarljós hátíðarinnar eru fagmennska, fjölbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi fyrir öll börn og ungmenni. Vettvangur hátíðarinnar er Akureyri og leitast er við að nýta spennandi og áhugverð rými þar sem börn geta skapað, notið, sýnt og túlkað. Meginreglan er að aðgengi að viðburðum sé ókeypis.

Barnamenningarhátíð á Akureyri tekur mið af markmiðum Menningarstefnu Akureyrarbæjar og aðgerðaráætlun barnvæns sveitarfélags.

Heimili Barnamenningarhátíðar á Akureyri á samfélagsmiðlum er að finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram. Einnig mælum við með að gestir hátíðarinnar noti myllumerkið #barnamenningak.

Verkefnastjórn Barnamenningarhátíðarinnar er í höndum Hólmfríðar Kristínar Karlsdóttur. Hægt að senda henni línu á netfangið barnamenning@akureyri.is eða hringja í síma 460-1157.

Hvenær
27. - 30. apríl
Hvar
Akureyri
Nánari upplýsingar

Barnamenningarhátíð á Akureyri 2024

1.-30. apríl