Til baka

Barnamenningarhátíð á Akureyri 2020

Barnamenningarhátíð á Akureyri 2020

Tækifæri til að njóta lista og menningar fyrir börn og ungmenni.


Skoðaðu viðburði hátíðarinnar 2020 HÉR

 

Markmið Barnamenningarhátíðar á Akureyri er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og veita þeim tækifæri til að njóta lista og menningar. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem efla sköpunarkraftinn. Árið 2020 er októbermánuður helgaður Barnamenningarhátíð á Akureyri.

Leiðarljós hátíðarinnar eru fagmennska, fjölbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi fyrir öll börn og ungmenni. Vettvangur hátíðarinnar er Akureyri og leitast er við að nýta spennandi og áhugverð rými þar sem börn geta skapað, notið, sýnt og túlkað. Meginreglan er að aðgengi að viðburðum sé ókeypis.

Barnamenningarhátíð á Akureyri tekur mið af markmiðum Menningarstefnu Akureyrarbæjar og aðgerðaráætlun Akureyrarbæjar um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að verða fyrsta barnvæna sveitarfélagið.

Heimili Barnamenningarhátíðar á Akureyri á samfélagsmiðlum er að finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram. Einnig mælum við með að gestir hátíðarinnar noti myllumerkið #barnamenningak #hallóakureyri og #akureyri.

Á tímum Covid-19 skal virða fjarlægðarmörk, samkomutakmarkanir og auglýstar sóttvarnareglur yfirvalda sem hægt er að sjá nánar á www.covid.is

Verkefnastjórn Barnamenningarhátíðarinnar er í höndum Almars Alfreðssonar. Hægt að senda honum línu á netfangið barnamenning@akureyri.is eða hringja í síma 460-1157.


ÞÁTTTAKA
Þeir sem vilja taka þátt í hátíðinni 2020 er bent á að senda línu á netfangið barnamenning@akureyri.is eða hringja í síma 460-1157.
*Athugið að þetta er eingöngu fyrir þá sem eru ekki að sækja um styrk. 

STYRKIR
Búið er að úthluta styrkjum fyrir hátíðina 2020. Listi yfir styrkt verkefni HÉR
Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að umsóknaraðilar kynni sér verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri sem er að finna HÉR

 

 

Hvenær
1. - 31. október
Hvar
Akureyri
Nánari upplýsingar

Viðburðir hátíðarinnar verður að finna á síðunni

barnamenning.is