Dansandi sögustund
Lifandi sögustund þar sem börn hreyfa sig og lifa sig inn í sögu.
Lifandi sögustund fyrir börn á aldrinum 3-4 ára. Með leiðsögn kennarans ferðast börnin í gegnum söguna um rýmið, hreyfa sig, nota ímyndunaraflið og skapa og lifa sig inn í bókina.
Komdu og dansaðu söguna með okkur!
Danssetrið er vettvangur fyrir alla sem vilja kynnast eigin getu og styrkleikum í gegnum hreyfingu. Stofnendur Danssetursins eru Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ingunn Elísabet Hreinsdóttir. Þær hafa báðar reynslu og menntun innan listdansins og starfa við kennslu í dag. Þær munu sjá um kennsluna.
Skráning á danssetrid@danssetrid.is
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.