Bunnyverse Company heldur skapandi dansnámskeið fyrir börn á aldrinum 7–10 ára sem danslistafólkið Leevi Mettinen og Sóley Ólafsdóttir leiða. Námskeiðið tileinkar sér ekki ákveðinn dansstíl og hentar því vel öllum börnum, hvort sem þau hafa reynslu af dansi eða ekki. Hugmyndin á rætur sínar í sýningu og hugmyndafræði dansverksins Kanlínudans.
Námskeiðið er kennt bæði á ensku og íslensku og stendur í eina klukkustund. Þátttakendur eru leiddir í gegnum leiki og dansandi flæði í leit að dansandi kanínu hvers og eins. Í hugmyndafræði Kanlínudans birtast hugsanamynstur sem kóreógrafískar samsetningar, og á námskeiðinu samræma þátttakendur hugsun, hugmyndir og hreyfingu með fjölbreyttum æfingum.
Í Kanlínudansi koma fram kanínurnar Leynir og Læða, sem endurspegla tvo ólíka hluta heilans: hraða hluta heilans og hæga hluta heilans (Thinking Fast and Slow). Á námskeiðinu nota Leevi og Sóley báðar nálganir í spunaæfingum og kóreógrafíu. Í lokin kenna þau sérstakan kanínudans með hreyfingum úr verkinu og allir dansa saman!
Danslistafólkið Leevi Mettinen frá Finnlandi og Sóley Ólafsdóttir frá Íslandi útskrifuðust bæði með BA-gráðu af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands. Þau starfa sem sjálfstætt starfandi dansarar og danshöfundar auk þess að skapa og framleiða eigin verk.
Leevi og Sóley framleiða danssýningar fyrir börn undir nafninu Bunnyverse Company, þar sem þau byggja á farsælli vegferð sinni með fyrsta verkinu Kanlínudans frá árinu 2024. Þau hafa einnig stýrt sambærilegum námskeiðum, meðal annars sem hluta af listahátíðinni Sequences árið 2025 og í barna- og fjölskyldudagskrá Dansverkstæðisins í janúar síðastliðnum.