Dekurdagar 2023 fara fram 5. - 8. október. Þetta er helgi þar sem vinkonur, vinir, pör, fjölskyldur og vinnufélagar njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman. Hægt er að velja úr fjölda viðburða sem gleðja hjartað, verslanir og fyrirtæki bjóða mörg hver upp á ýmiskonar dekurlega afslætti af þessu tilefni. Viðburðurinn er einnig stór styrktaraðili Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.
(Dömulegir) Dekurdagar voru fyrst haldnir árið 2008.
Uppfærð dagskrá fyrir 2023 verður birt þegar nær dregur.
Fylgist með á Facebook síðu Dekurdaga þar sem m.a. má sjá fjölda tilboða sem verða í boði.