Til baka

Eyfirski safnadagurinn

Eyfirski safnadagurinn

Sumardaginn fyrsta opna söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi.

Viðburðurinn hóf göngu sína árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan. Sumardaginn fyrsta opna um 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi undir heitinu Eyfirski safnadagurinn. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð. Enginn aðgangseyrir er að söfnunum á Eyfirska safnadeginum.

Árið 2023 verður Eyfirski safnadagurinn haldinn þann 20. apríl.

Söfn, setur og sýningar á Eyjafjarðarsvæðinu verða með opið frá kl. 13:00 - 17:00 og ókeypis aðgang í tilefni dagsins.  Margt fróðlegt og skemmtilegt verður í boði á söfnunum þennan daginn!

Dagskrá 2021 (uppfærð dagskrá fyrir árið 2023 verður birt hér þegar nær dregur).

Hvenær
fimmtudagur, apríl 20
Hvar
Akureyri og Eyjafjörður