Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir leiðir hugljúfa og skemmtilega fjölskyldujógastund í Listasafninu á Akureyri. Þátttakendur kyrra hugann, æfa öndun og jógastöður. Jafnframt verður farið í hreyfitengda leiki og slakað vel á í lokin. Öll velkomin!
Arnbjörg Kristín hefur leitt fjölskyldujóga á Barnamenningarhátíð undanfarin ár, bæði í Reykjavík og á Akureyri.
*Ekkert þátttökugjald en takmarkaður fjöldi þátttakenda og skráning nauðsynleg á netfangið heida@listak.is
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.