Til baka

Hæfileikakeppni Akureyrar 2024

Hæfileikakeppni Akureyrar 2024

Stórskemmtilegur viðburður fyrir 5-10. bekkinga á Akureyri.

Hæfileikakeppni Akureyrar er árlegur viðburður fyrir börn í 5. - 10. bekk. Eins og orðið hæfileikakeppni gefur til kynna er um að ræða fjölbreytta keppni enda geta hæfileikar verið afar fjölbreyttir. Dæmi um atriði sem gætu skráð sig til leiks geta verið á sviði sönglistar, leiklistar, danslistar, töfrabragða og hljóðlistar svo eitthvað sé nefnt. Atriðin geta verið einstaklingsatriði, paraatriði eða hópatriði.

Með viðburðinum viljum við vinna með styrkleika og og hæfileika barna og unglinga. Slíkur viðburður getur verið vettvangur fyrir ungt fólk á Akureyri til þess að koma sér á framfæri en fyrst og fremst er um að ræða mikilvægan stökkpall fyrir einstaklinga til þess að stíga út fyrir þægindarammann sinn.

Skráningu lokið

Skráning endar 19. apríl

Frekari upplýsingar hulda.osk.jonsdottir@akureyri.is og andri.mar.mikaelsson@akureyri.is 

 

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 24. apríl
Tímasetning: 16.00-18.00
Staðsetning: Hof
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Annað: Skráningu lokið


Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
miðvikudagur, apríl 24
Klukkan
16:00-18:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir