Tveggja daga smiðja fyrir börn í 3. – 6. bekk er haldin í Listasafninu á Akureyri í tengslum við sýningu á innsetningu listakonunnar Bjarkar Viggósdóttur, Hreyfing fyrir sjón. Kennt verður báða dagana frá kl. 11 – 13. Þátttakendur skoða innsetninguna, fá frá henni innblástur og verða partur af listaverkinu. Þau vinna með hreyfingu í skúlptúr, teikningu og alls konar miðla myndlistar, þar sem ímyndunaraflið og sköpunargleðin verður allsráðandi.
*Ekkert þátttökugjald en takmarkaður fjöldi þátttakenda og skráning nauðsynleg á netfangið heida@listak.is
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.