Opnun sýningarinnar "Hvað sé ég?" verður laugardaginn 18. apríl kl.14:00 í Menningarhúsinu Hofi. Nemendur úr 5.-6. bekk Glerárskóla sýna afrakstur heimsókna til þriggja listamanna. Málverk, teikningar og myndband frá heimsóknunum.
Umsjón með verkefninu hefur Elsa María Guðmundsdóttir MA í menningarstjórnun og sjónlistakennari við Glerárskóla.
Veitingar frá veitingahúsinu Majó við opnun.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Mynlistarsýningin er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og unnin í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR