Langspil er gamalt íslenskt hljóðfæri sem er er aðgengilegt öllum.
Í smiðjunni læra börn og foreldrar undirstöðuatriðin í langspilsleik eins og stramm og plokk með álftafjöðrum og hrosshársbogum.
Við fræðumst um langspilið í sögulegu, og alþjóðlegu samhengi og lærum nokkur lög sem við flytjum saman undir lok smiðjunnar.
Langspilsleikur er tónlistarform sem er aðgengilegt öllum, óháð tónlistarmenntun eða bakgrunni. Það þarf enga tónlistarmenntun til að kalla fram hljóm og nýtur sín í alls kyns tónlistarsköpun.
Eyjólfur Eyjólfsson söngvari og langspilsgúrú leiðir smiðjuna.
Nánari upplýsingar:
Tímasetning: 18. apríl kl 12:00-13:00
Staðsetning: Minjasafnið - Aðalstræti 58
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Búnaður: Hljóðfæri á staðnum
Tímalengd: Ein klukkustund
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar og Uppbyggingarsjóði SSNE