Til baka

Leikum með sögulegt hljóðfæri

Leikum með sögulegt hljóðfæri

Langspilssmiðjur í skólum eða Minjasafninu með Eyjólfi Eyjólfssyni söngvara.

Í tengslum við barnamenningarhátíð í apríl býður Minjasafnið á Akureyri upp á langspilssmiðjur í samvinnu við Eyjólf Eyjólfsson söngvara sem hefur um árabil staðið fyrir slíkum smiðjum.

Langspil er gamalt íslenskt hljóðfæri. Í langspilssmiðjum læra börn undirstöðuatriðin í langspilsleik eins og stramm og plokk með álftafjöðrum. Einnig verður boðið upp á að strjúka strengina með hrosshársbogum.

Nemendur fræðast um langspilið í sögulegu, menningarlegu og alþjóðlegu samhengi og læra nokkur lög sem verða undir lok smiðjunnar flutt við langspilsleik þátttakenda.

Langspilsleikur er tónlistarform sem er aðgengilegt öllum, óháð tónlistarmenntun eða bakgrunni. Íslenska langspilið er bordún-sítar og því þarf enga tónlistarmenntun til að kalla fram hljóm sem er fagurfræðilega fullnægjandi og nýtur sín í alls kyns tónlistarsköpun. Með langspilsleik öðlast börn hlutdeild í listsköpun sem bæði teygir sig langt aftur í aldir.

 

Nánari upplýsingar:
Tímasetning: 8.- 12. apríl á milli 08.00 – 14.00 fyrir grunnskóla
Staðsetning: Grunnskólum eða á Minjasafninu eins og hentar
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Annað: Skráning nauðsynleg
Búnaður: Eyjólfur mætir með allt á staðinn sem til þarf
Tímalengd: Ein klukkustund

Pantið tíma: minjasafnid@minjasafnid.is


Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
8. - 12. apríl
Klukkan
08:00-14:00
Hvar
Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58
Verð
Enginn aðgangseyrir en skráning nauðsynleg