Í tilefni af Barnamenningarhátíð á Akureyri geta börn á öllum aldri tekið þátt í að skapa mósaíklistaverk í anddyri bókasafnsins frá 3. apríl til 28. apríl 2023 á opnunartíma safnsins.
Útlínur sjálfs Amtsbókasafnsins verða strikaðar á stóra plötu sem staðsett er á safninu. Síðan geta gestir safnsins límt á plötuna allskonar úrklippur sem staðsettar verða við plötuna. Í sameiningu gera því ungir gestir bókasafnsins stórkostlegt mósaíklistaverk af safninu.
Listaverkið verður síðan til sýnis á safninu fyrir gesti og gangandi að skoða.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR