Listasumar á Akureyri 2023 verður sett föstudaginn 11. júní og lýkur þann 24. júlí. Ævintýrin verða til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman. Listasmiðjur á Listasumri 2022 skipa veglegan sess eins og hefð er fyrir. Fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og fullorðna eru í boði í júní og júlí.
Verkefnastjórn Listasumars er í höndum Almars Alfreðssonar. Hægt er að senda honum línu í netfangið listasumar@akureyri.is
Samstarfsaðilar Listasumars eru:
Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Rósenborg, Gilfélagið, Menningarhúsið Hof, Sundlaug Akureyrar, Iðnaðarsafnið, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Geimstofan.
Heimili Listasumars á samfélagsmiðlum er finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram.
Einnig mælum við með að gestir Listasumars noti myllumerkin #listasumar #hallóakureyri