Til baka

Listasumar 2023

Listasumar 2023

Ævintýrin verða til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum.

Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is

Listasumar á Akureyri 2023 verður sett föstudaginn 7. júní og lýkur þann 23. júlí. Ævintýrin verða til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman. Listasmiðjur á Listasumri 2023 skipa veglegan sess eins og hefð er fyrir. Fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og fullorðna eru í boði í júní og júlí.

Verkefnastjórn Listasumars er í höndum Almars Alfreðssonar. Hægt er að senda honum línu í netfangið listasumar@akureyri.is

Samstarfsaðilar Listasumars eru:
Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Gilfélagið, RÖSK, Kaktus, Menningarhúsið Hof, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Ketilkaffi, Braggaparkið, Sumartónleikar í Akureyrarkirkju og Geimstofan.

Nánari upplýsingar:

Heimili Listasumars á samfélagsmiðlum er finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram.
Einnig mælum við með að gestir Listasumars noti myllumerkin #listasumar #hallóakureyri

Hvenær
7. júní - 23. júlí
Hvar
Akureyri