Listasumar á Akureyri 2025 hefst þriðjudaginn 24. júní og lýkur þann 19. júlí. Ævintýrin verða til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman.
Verkefnastjórn Listasumars er í höndum Jóns Hauks Unnarssonar. Hægt er að senda honum línu í netfangið listasumar@akureyri.is
Samstarfsaðilar Listasumars eru:
Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Gilfélagið, RÖSK, Kaktus, Menningarhúsið Hof, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Sumartónleikar í Akureyrarkirkju.
Heimili Listasumars á samfélagsmiðlum er finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram.
Einnig mælum við með að gestir Listasumars noti myllumerkin #listasumar #hallóakureyri