Til baka

Ljósmyndamaraþon

Ljósmyndamaraþon

Ljósmyndamaraþon fyrir 6-15 ára - Taktu þátt í að búa til sýningu á Minjasafninu

Áttu síma eða myndavél? Ert þú á aldrinum 6-15 ára?

Taktu þátt í að búa til sýningu á Minjasafninu á Akureyri með þínum ljósmyndum frá Akureyri á Barnamenningarhátíð í apríl. Myndirnar verða settar upp jafnóðum á sýningunni Akureyri bærinn við Pollinn. Þú færð a.m.k. eina mynd á sýninguna.

Sendu eina mynd úr hverjum flokki eða bara eina mynd úr því þema sem þér líst á. Hlökkum til að sjá og sýna myndirnar ykkar.

Þemun eru:

1. Uppáhaldsstaðurinn minn á Akureyri
2. Hverfið mitt
3. Sumardagurinn fyrsti
4. Litir
5. Búðarferð

Sendu myndina/myndirnar á leikur@minjasafnid.is ásamt nafninu þínu og aldri.

Dregið verður úr innsendum myndum – Poloroid myndavél í verðlaun.


Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
1. - 30. apríl
Hvar
Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald