Til baka

Manndýr- Þátttökusýning

Manndýr- Þátttökusýning

MANNDÝR er þátttökusýning um hlutverk mannsins út frá sjónarhorni barna.

MANNDÝR er þátttökusýning um hlutverk mannsins út frá sjónarhorni barna. Í sýningunni er samband barna og fullorðinna skoðað og spurningunni um hlutverk þeirra á jörðinni velt upp.

Í Manndýr er gestum boðið inn í heim þar sem hægt er að upplifa með eyrum, augum og höndum, sjálf eða í samvinnu. Við gefum okkur tíma til að spyrja spurninga sem fá svör eru við og dvelja í heimi þar sem börn segja alla söguna.

Verkið var frumsýnt 2022 í Tjarnarbíó og hefur verið sinnt 80 sinnum víða á Islandi og erlendis við mjög góðar undirtektir.

Aldur: frá 3 ára

Lengd: 45 mín

Upplýsingar um aðgengi:

Í Manndýr sitja áhorfendur á sviðinu, á púðum. Einnig er hægt að fá stól aftar í rýminu ef þarf. Í sýningunni eru leikhúsljós, en aldrei almyrkur. Manndýr er þátttökusýning; í fyrsta hluta sitja áhorfendur á púðum, en eftir um það bil 20 mínútur eru börnin boðin til að leika sér og mega fara hvert sem þau vilja. Hægt er að njóta sýningarinnar í hjólastól. Það truflar ekki sýninguna ef barn þarf að fara út úr rýminu á meðan á henni stendur, og er alltaf velkomið inn aftur.

Sýningin er styrkt af ferðastyrk frá Sviðslistamiðstöð Íslands og Barnamenningarhátíðinni á Akureyri.

Aðstandendur:

Sviðshöfundur, listrænn stjórnandi: Aude Busson

Flytjandi: Snædís Lilja Ingadóttir

Leikmynda- og búningahönnuður & sviðshöfundur: Sigríður Sunna Reynisdóttir

Tónlist og hljóðmynd: Björn Kristjánsson

Heimspeki-kennari: Marion Herrera

Leikmyndagerð: Steinunn Marta Önnudóttir

Búningagerð : Ólöf Ágústína Stefánsdóttir

Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánsson

Framkvæmdastjórar: Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, Renaud Durville og Ragnheiður

Maísól Sturludóttir

Raddir barnanna: Nemendur í Landakotskóla

Gerð sýningarinnar var styrkt af Sviðslistasjóði, Launasjóði listamanna og

Barnamenningarsjóði, í samstarfi við Tjarnarbíó.

Hvenær
laugardagur, apríl 11
Klukkan
15:30-16:15
Hvar
Skólastígur 2