Í tilefni Barnamenningarhátíðar býður Braggaparkið áhugasömum börnum og ungmennum að prófa flottustu innanhússaðstöðuna á Akureyri fyrir hjólabretti, línuskauta, hlaupahjól og BMX-hjól.
Hægt er að fá lánað hjólabretti, hlaupahjól og hjálma. Athugið að hjálmaskylda er fyrir 16 ára og yngri.
Vegglistaverkakeppni
Áhugasamir geta tekið þátt í vegglistaverkakeppni. Dómnefnd fer yfir listaverkin og tilkynnir á lokadegi Opnu dagana þann 25. apríl hvaða listamaður/menn fá að skreyta vegg í Braggaparkinu og þar með bætast í hóp listamannana Margeirs Dire, Sigþórs V., Hákons Arnar og Osesh One.
Einungis verður hægt að taka þátt í keppninni á Opnu dögum Braggaparksins 4.,11.,18. og 25. apríl.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR