Þér er boðið á Óvissuævintýri með Suzukideild Tónlistarskólans á Akureyri. Ævintýrið mun koma þér skemmtilega á óvart. Sögð verður saga full af óvæntum uppákomum og litríkum persónum og tónlist mun hljóma í flutningi barna á öllum aldri. Verkefnið er unnið í samvinnu kennara, nemenda og foreldra við Suzukideildina. Verið hjartanlega velkomin að upplifa með okkur sannkallað Óvissuævintýri.
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 30. apríl
Tímasetning: 17.00
Staðsetning: Hof, Naust
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR