Til baka

Pípur, hús og nótur - setjum saman orgel

Pípur, hús og nótur - setjum saman orgel

Viltu setja saman orgel! Námskeið fyrir 6-12 ára.
Spennandi námskeið í Minjasafninu á Akureyri fyrir 6-12 ára.
 

Á sýningunni Tónlistarbærinn Akureyri leikum við okkur með að setja saman orgel, pípu fyrir pípu, raða nótum og tengja við vindhlöðu, setja saman orgelhúsið og auðvitað prófa hljóðfærið.

Í lokin flytjum við saman ævintýri fyrir orgel og sögumann sem samið var sérstaklega fyrir orgelið.

Orgelkrakkar er stórfróðlegt og skemmtilegt verkefni sem hefur notið mikillar velgengni í Evrópu undanfarin ár.
Orgelið sem um ræðir er afar einfalt að gerð, lítið og nett og stærðin passar börnum vel. Það kemur í bitum eða kubbum og er til þess gert að taka í sundur og setja saman aftur. Svona eins og úr legó eða trékubbum.

Það er organistinn Sigrún Magna Þórsteinsdóttir sem stjórnar þessari stund sem tekur klukkutíma og ætluð krökkum á aldrinum 6-12 ára.

Þátttökugjald er ekkert - skráning á minjasafnid@minjasafnid.is

 

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 13. apríl
Tímasetning: 12.00 – 13.00
Staðsetning: Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Annað: Skráning nauðsynleg


Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og SSNE.

Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
laugardagur, apríl 13
Klukkan
12:00-13:00
Hvar
Minjasafnið á Akureyri, Hafnarstræti 58
Verð
Enginn aðgangseyrir en skráning nauðsynleg