Seinna ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 7. október á LYST í Lystigarðinum. Að þessu sinni er leiðbeinandinn Hildur Knútsdóttir.
Hildur skrifar bækur fyrir bæði börn og fullorðna sem og leikrit og smásögur. Hún er einna helst þekkt fyrir furðusögur og uggvænlegar hrollvekjur. Meðal bóka eftir hana eru Vetrarfrí og Vetrarhörkur, Myrkrið milli stjarnanna, Hrím, Kasia og Magdalena, Gestir og þríleikurinn Ljónið, Nornin og Skógurinn. Verk Hildar hafa hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar, þeirra á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og Verðlaun bóksala. Nánari upplýdingar um Hildi og verk hennar má finna á hildurknutsdottir.is
Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, kynnast skrifum annarra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.
Veitingar í boði fyrir skráða gesti.
Skráning HÉR
Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.
Nánar um Ungskáld HÉR