Til baka

Ritlistakvöld með Margréti S. Höskuldsdóttur

Ritlistakvöld með Margréti S. Höskuldsdóttur

Fyrra ritlistakvöld Ungskálda 2026

Fyrra ritlistakvöld Ungskálda verður miðvikudagskvöldið 18. mars á LYST í Lystigarðinum. Að þessu sinni er leiðbeinandinn Margrét S. Höskuldsdóttir.

Margrét hlaut á dögunum Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bókina Lokar augum blám sem kom út haustið 2025. Margrét hefur verið umkringd bókum frá barnæsku og hefur mikinn áhuga á bókmenntum og ljóðum. Það að skrifa skáldsögu spratt svo fram á síðustu árum og fyrsta skáldsagan, Dalurinn, leit dagsins ljós sumarið 2022. Önnur bók Margrét, Í djúpinu, kom út árið 2024 og þýðingarétturinn hefur þegar verið seldur til Þýskalands.

Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og því að kostnaðarlausu. Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, kynnast skrifum annarra og jafnvel lesa upp sín eigin verk.

Veitingar í boði fyrir skráða gesti.
Skráning HÉR

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.


Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Hvenær
miðvikudagur, mars 18
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
LYST, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald - Skráning æskileg
Nánari upplýsingar

Nánar um Ungskáld HÉR