Til baka

Sköpun bernskunnar

Sköpun bernskunnar

Samsýning skólabarna og starfandi listamanna.

Þetta er tíunda sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp sem hluti af safnfræðslu, með það markmið að gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn. Þátttakendurnir vinna verk sem falla að þema sýningarinnar sem að þessu sinni er manneskjan öll.

Myndlistarmennirnir sem boðin var þátttaka í ár eru Úlfur Logason og Hlaðgerður Íris Björnsdóttir. Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Klappir og grunnskólarnir Lundarskóli, Brekkuskóli og Síðuskóli, sem og Minjasafnið á Akureyri / Leikfangahúsið.

Sýningarstjóri er Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.

Frítt er inn á safnið fyrir 18 ára og yngri.


Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
1. - 23. apríl
Klukkan
12:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Aðgangseyrir inn á safnið - frítt fyrir 18 ára og yngri
Nánari upplýsingar

Nánar um Listasafnið á Akureyri HÉR