Sögur á iði er afrakstur verkefnis á Leikskólanum Iðavelli þar sem fjöltyngd börn af elstu tveimur deildum leikskólans Iðavallar sömdu sögur með ýmsum leiðum. Sum völdu sér mynda-steina til að búa til sögur í kringum, önnur völdu sér segulmyndir, önnur nýttu fingrabrúður, önnur voru með leikefni.
Markmiðið var að efla sköpunargleði barnanna, málþroska og listræna hæfileika þeirra.
Með því að velja aðeins fjöltyngdu börnin var lagt upp með að gera þeirra starf í leikskólum sýnilegra og lyfta upp því starfi upp sem leikskólinn sinnir með fjöltyngdu börnunum. Í leikskólanum eru mörg börn af erlendu bergi brotin og því mikil fjölmenninngarvinna í gangi á Iðavelli. Börnin eru öll í ÍSAT málörvun hjá kennurum sínum í hverri viku. (ÍSAT = íslenska sem annað tungumál). Ferlið var myndað og skráð af kennurum og úr því varð sýningin sögur á iði sem er nú til sýnis á Amtsbókasafninu.
Sýningin er aðgengileg á opnunartíma Amtsbókasafnsins sem er eftirfarandi:
Mánudagar-föstudagar: 08:15-19:00
Laugardagar: 11:00-16:00
Sunnudagar: Lokað
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarhátíð Akureyrar.