Sumarið er tíminn til að leika sér. Hvað er þá betra en að búa sér til sitt eigið leikfang!
Listakonurnar Jonna og Brynhildur leiða leikfangasmiðju fyrir 6 til 13 ára á Minjasafninu á Akureyri þar sem hver og einn býr til leikfang úr endurnýtanlegu efni. Kannski endar það á leikfangasafninu i framtíðinni?
Eftir smiðjuna heimsækjum við leikfangahúsið og skoðum leikföng frá ýmsum tímum m.a. frá Leikfangagerð Akureyrar og Leifsleikföngum.
Skráning nauðsynleg - takmarkaður fjöldi
ATH. FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ
Skráning á minjasafnid@minjasafnid.is með upplýsingum um:
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR