Það verður sannkölluð tónlistarveisla á sviði Hamraborgar í Hofi á Sumartónum Ungmennaráðs Akureyrar, Menningarhússins Hofs og Akureyrarbæjar í tilefni Barnamenningarhátíðar á Akureyri.
Saint Pete og Karólína lofa rífandi stemningu og stuði á sumardaginn fyrsta!
Hina unga og hæfileikaríka Karólína Orradóttir stígur fyrst á stokk og hitar gesti salarins vel upp áður en hin akureyrska rappstjarna Saint Pete hoppar inn á fjalir Hamraborgar og tryllir gesti með takti, orðaleikjum og hnyttnum textum.
Saint Pete er listamannsnafn tónlistarmannsins og Akureyringsins Péturs Más Guðmundssonar. Hann kemur fram á Sumartónum ásamt félaga sínum Hreini Orra Óðinssyni, sem sér um takkana.
Saint Pete er talinn einn skemmtilegasti rapparinn á landinu í dag. Hann skaust óvænt, ásamt Hreini Orra, upp á stjörnuhimininn 2023 með laginu “Akureyri” og frægðarsól þeirra félaga skín þar enn. Saint Pete gaf út sína fyrstu plötu, Græni pakkinn, árið 2024 með ofursmellinum Tala minn skít, sem rauk beint inn á vinsældalista og var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem lag ársins 2025 í Hipphopp- og raftónlist. Lag hans, Súperman, var einnig tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026, sem Hipphopp-lag ársins. Hann var valinn nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum sama ár.
Karólína Orradóttir er 15 ára Akureyringur. Hún hefur haft áhuga á tónlist frá unga aldri og hefur verið í söngnámi af einhverju tagi í fjögur og hálft ár. Akkúrat núna stundar hún rytmískt söngnám á miðstigi við Tónlistarskólann á Akureyri.
Karólína syngur ekki bara, hún semur líka sitt eigið efni og þá grípur hún í alls konar hljóðfæri, mest í gítarinn en líka ukulele, hljómborð, munnhörpu og trommur.
Hún hefur gefið út eitt lag en annað lag er væntanlegt bráðlega, svo er aldrei að vita nema hún fari að skella í plötu.
Hallgrímur Jónas Ómarsson spilar undir á gítar.
Sumartónar 2026 setja punktinn yfir I-ið á Barnmenningarhátíðiðinni á Akureyri í ár!