Til baka

Súpufundur ferðaþjónustunnar - Skráning nauðsynleg!

Súpufundur ferðaþjónustunnar - Skráning nauðsynleg!

Fyrsti súpufundur ferðaþjónustunnar á nýju ári verður haldinn, þriðjudaginn 21. janúar kl. 11.30 - 13.00
Fundarstaður: Veitingastaðurinn Greifinn, Glerárgötu 20, 2.hæð.
Boðið upp á matarmiklasúpu, salat, kaffi & súkkulaði á kr. 2000 sem greiðist á staðnum.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir lok mánudagsins 20. janúar hér fyrir neðan.

DAGSKRÁ:

11.30 Matur framreiddur og borðað meðan á kynningu og umræðum stendur

11.45 Eru upplýsingamiðstöðvar ferðamanna tímaskekkja?
Ferðamálastofa hefur f.h. ríkisins ákveðið að hætta beinum stuðningi við upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Íslandi sem mun setja strik í reikninginn í rekstri þeirra. Farið yfir stöðu og verkefni upplýsingamiðstöðarinnar á Akureyri og hvað er í deiglunni. Umræður.
Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður Akureyrarstofu

12.10 Ferðamenn í Hrísey sumarið 2019
Fjallað um helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal ferðamanna í Hrísey. Hvar liggja tækifærin í markaðssetningu eyjunnar?
& ný heimasíða visitakureyri
Örstutt kynning á nýrri útgáfu heimasíðunnar Visitakureyri.is.
Ragnar Hólm, verkefnastjóri Akureyrarstofu

12.30 Arctic Coast Way
Staða verkefnisins, hvernig nota má verkefnið í markaðssetningu og um verkefnið "Taste the Arctic Coast Way".
Christiane Stadler, verkefnastjóri Markaðstofu Norðurlands.

12.45 Kynning á Ratsjánni á Norðurlandi eystra
Ratsjáin er þróunar- og nýsköpunarverkefni ætlað stjórnendum í starfandi ferðaþjónustufyrirtækjum. Markmið verkefnisins er bætt afkoma ferðaþjónustufyrirtækja með því að greina tækifæri til nýsköpunar og styrkja enn frekar þekkingu, færni og tengsl stjórnenda.
Ratsjáin er samstarfsverkefni Íslenska ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar og er unnin með stuðningi af Byggðaáætlun.
Selma Dögg Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöð Íslands

13.00 Fundarlok

Fundarstjóri: Jón Þór Kristjánsson, verkefnastjóri Akureyrarstofu.

Skráning og nánari upplýsingar má sjá á
https://www.visitakureyri.is/is/moya/formbuilder/index/index/supufundur-21-januar?fbclid=IwAR1D7IQcBEzrNdM0I-jYpc3iXSYXpkxz2qBTuaVK5qKjLUl0iqJQSfXst8g

Hvenær
þriðjudagur, janúar 21
Klukkan
11:30-13:00
Hvar
Greifinn, Glerárgata, Akureyri
Nánari upplýsingar

Skráning hér