Í Svakalegu sögusmiðjunni lærir þú fjölbreyttar leiðir til að búa til fyndnar, spennandi og ævintýralegar sögur.
Hvar: Amtsbókasafnið á Akureyri
Hvenær: föstudaginn 17. apríl kl 16-18 og laugardaginn 18. apríl kl 12-14.
Hópurinn hittist í tvö skipti.
Frítt en nauðsynlegt að skrá sig!
Sendu tölvupóst á eydisk@amtsbok.is til að skrá þig í smiðjuna.
Eva Rún Þorgeirsdóttir, rithöfundur, og Blær Guðmundsdóttir, teiknari og rithöfundur, hafa sent frá sér fjölda barnabóka og kennt krökkum skapandi skrif um allt land.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR