Til baka

Töfrar Tónakistunnar - skapandi tónlistarsmiðja fyrir börn

Töfrar Tónakistunnar - skapandi tónlistarsmiðja fyrir börn

Tónlistarsmiðja fyrir 7-10 ára börn með áherslu á tónsköpun.
Töfrar Tónakistunnar (11. og 12. apríl) er skapandi smiðja þar sem börn á aldrinum 7-10 ára fá að kynnast tónlist á skemmtilegan hátt. Þátttakendur semja saman eigin texta, búa til lag, prófa sig áfram í spuna og taka þátt í fjölbreyttum tónlistarleikjum úr kennsluefni Tónakistunnar. Börnin fá tækifæri til þess að prófa ýmis slagverkshljóðfæri og um leið efla ímyndunarafl sitt.
 
Í smiðjunni verður lögð áhersla á sköpunargleði, sjálfstyrkingu og samvinnu, í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Í lok smiðjunnar fá börnin upptöku af laginu sem þau sömdu saman, sem minningu og afrakstur smiðjunnar.
Leiðbeinendur smiðjunnar eru Sæbjörg Eva Hlynsdóttir, Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir og Svava Rún Steingrímsdóttir. Allar starfa þær við tónlistarkennslu, hafa lokið menntun frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hafa sérhæft sig í skapandi vinnu með börnum.
 
Smiðjan, sem er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri, er tveggja daga smiðja (11.-12. apríl) sem er í þrjár klukkustundir í senn (13:00-16:00). Skráning nauðsynleg og þátttakendur koma báða daga smiðjunnar.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS!
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrar.
Hvenær
11. - 12. apríl
Hvar
Glerárkirkja
Verð
Aðgangur ókeypis