Til baka

Tónleikar Upptaktsins

Tónleikar Upptaktsins

Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna.

Upptakturinn gefur ungu fólki tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum með flutningi listafólks. Nú hafa tíu unghöfundar unnið með listafólki að útsetningu laga sinna. Afrakstur vinnunnar má sjá og heyra á tónleikunum þar sem börn á aldrinum 10-16 ára hafa skapað ellefu verk sem flutt verða á tónleikunum. Verkin ellefu voru valin af dómnefnd úr fjölda umsókna, sem bárust í Upptaktinn í ár. Verk ungtónskáldanna eru útsett af fagfólki og flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum á stóra sviðinu í Hamraborg.

Ungtónskáldin og verk þeirra :
Anna Lovísa Arnarsdóttir - Eyrun mín sjá liti
Eiður Reykjalín Hjelm - Frühlig im Wald (vor í skóginum).
Hákon Geir Snorrason - Svigrúm
Heimir Bjarni Steinþórsson - Metal Dandelion
Jóhann Valur Björnsson - Unfathomable
Jóhann Valur Björnsson - Blossom
Jóhanna Kristín Júliusdóttir - Fjölskyldur
Svanborg Alma Ívarsdóttir - Draumur túnfisksins
Þórhallur Darri - Show me your heart
Þórhildur Eva Helgadóttir - Froskadansinn
Tobías Þórarinn Matharel - Trompetlag

Hljómsveitina skipa:
Emil Þorri Emilsson – slagverk og trommur
Eyþór Ingi Jónsson – píanó og hljómborð
Greta Salóme – fiðla og söngur
Kristján Edelstein – gítar
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir - selló
Stefán Ingólfsson – bassi
Vilhjálmur Ingi Sigurðsson - trompet

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Kristján Edelstein og Greta Salóme.

Tónlistarstjóri: Greta Salóme.

 

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 7. Apríl. Kl 17.00
Tímasetning: 17.00
Staðsetning: Hof, Hamraborg
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Annað: Sæti eru 500, Öll velkomin meðan húsrúm leyfir


Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu og er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri.

Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR

Hvenær
sunnudagur, apríl 7
Klukkan
17:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir