Til baka

Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2022

Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2022

Hver verður Ungskáld Akureyrar 2022?

Fimmtudaginn 8. desember kl. 17.00 tilkynnir dómnefnd úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2022 í Amtsbókasafninu á Akureyri.
Öll velkomin.

Allar nánari upplýsingar er að finna á ungskald.is


Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.

Verkefnið hófst árið 2013 og það eina sinnar tegundar á landinu. Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku og eigið frumsamið hugverk.

Til þess að styðja við áhugasama um að skila inn texta/textum er boðið upp á námskeið í skapandi skrifum og skapandi hugsun, þar sem leiðbeinendur koma úr ólíkum áttum. Sem dæmi var síðustu ár leitað til Andra Snæs Magnasonar, Kött GráPjé og Bryndísar Björgvinsdóttur.

Einnig hefur ritlistakvöldið slegið í gegn en þar er gestum boðið upp á veitingar, upplestu og tónlistaratriði. Tilvalin vettvangur til að mynda tengsl í gegnum ritlistina.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.


Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Hvenær
fimmtudagur, desember 8
Klukkan
17:00-18:00
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir