Laugardaginn 15. apríl kl. 12-16, verður boðið upp á opna listsmiðju fyrir fjölskyldur í Listasafninu. Alls konar efniviður verður á staðnum og öll velkomin. Tilvalið tækifæri fyrir fjölskyldur að skapa sitt eigið listaverk og njóta samverunnar.
Verkefnastjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi.
Frítt er inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR
Nánar um Listasafnið á Akureyri HÉR