Margar góðar gönguleiðir eru í Dalvíkurbyggð enda sveitarfélagið staðsett á Tröllaskaganum sem er stærsta samfellda fjallasvæði landsins. Svæðið er kjörlendi fyrir göngufólk þar sem allir ættu að geta fundið leiðir við sitt hæfi, hvort sem menn vilja ganga á láglendi um Friðland Svarfdæla, klífa fjöll eða ganga fornar þjóðleiðir á milli byggðalaga.
Á meðfylgjandi hlekkjum á vef Dalvíkurbyggðar má finna göngukort með 10 gönguleiðum og lýsingu á leiðunum.
Gönguleiðir lýsing
Nokkrar stakar leiðir:
Bæjarfjall: 3-4 klst, 8,53 km og 701 m hækkun.
Nykurtjörn: 3-4 klst, 9.17 km og 626 m hækkun.
Mælt er með að skoða öryggi á gönguferðum áður en haldið er í fjallgöngu eða krefjandi leið.