Til baka

Rökkurró

Rökkurró

Kl. 20.00-22.00 - Setning Akureyrarvöku í Lystigarðinum.

Rökkurró, setningarhátíð Akureyrarvörku, fer fram í Lystigarðinum á Akureyri föstudagskvöldið 26. ágúst og hefst dagskráin kl. 20.00 með ávarpi Heimis Arnar Árnasonar forseta bæjarstjórnar. Á meðan fólk er að tínast í garðinn eða frá kl. 19.40 mun jasstríóið BabyBop leika af fingrum fram í Garðskálanum á flötinni við kaffihúsið LYST. Að setningarávarpi Heimis Arnar loknu stiklar Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála hjá Akureyrarbæ á stóru í dagskrá Akureyrarvöku 2022. Þá flytja félagarnir Jón Arnór og Baldur nokkur lög og því næst stígur söngkonan Guðný María á stokk í fyrsta sinn á Akureyri. Að því búnu flytur Kvennakór Akureyrar nokkur falleg lög og síðan keyra Stebbi JAK og Hafþór Valur í kröftugt rokk. Lokaatriðið er danssýning frá Steps Dancecenter og er áætlað að dagskránni ljúki kl. 22.00.

Eftir setningarhátíðina geta gestir valið um fjölda viðburða.
Kl. 22.00 - Kaffihúsið LYST - Tríó Kristjáns Edelsteins
Kl. 22.00 - Menningarhúsið Hof - Hávaðasamar vættir
Kl. 22.00 - Mjólkurbúðin / Listagilið - VAKA samsýning
Kl. 22.30 - Innbærinn - Draugaslóð í Innbænum
Kl. 22.30 - Miðbærinn - Tónleikar á Götubarnum / Sigvaldi & Villi

*Rauði krossinn verður á svæðinu og selur kerti fyrir friðarvökuna. Nánar HÉR


Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku.

Hvenær
föstudagur, ágúst 26
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir