Til baka

Innbærinn

Ein af höfuðprýðum Akureyrar er gömul hús. Í Innbænum og Fjörunni er að finna elstu hús bæjarins sem flest eru byggð á árunum 1800-1900. Mörg þeirra eru friðuð samkvæmt lögum.

Hin eiginlega Akureyri er eyri sem myndaðist af framburði lækjar sem rann niður Búðargil. Þar risu fyrstu verslunarhúsin á 17. öld. Fyrsta íbúðarhúsið reis árið 1777-1778. Það stóð þar sem nú er Hafnarstræti 3 en brann árið 1901. Elsta hús Akureyrar er Laxdalshús, reist 1795 og stendur það á miðri gömlu Akureyri. Með auknu frjálsræði í verslun á 19. öld og aukinni ásókn í byggð við ströndina jókst íbúabyggð á Akureyri og húsunum fjölgaði. Handverksfólk og tómthúsmenn fluttu til bæjarins og unnu við verslunina. Þörf var á auknu rými fyrir ný hús og byggðin færðist suður fjöruna og upp Búðargilið.

Tvær götur mynduðust sem nú eru Aðalstræti og Hafnarstræti og upp Búðargilið kom Lækjargata. Þótt miklir brunar 1901 og 1912 hafi höggvið stórt skarð í gömlu byggðina mynda húsin við Aðalstræti, hluta Hafnarstrætis og Lækjargötu óvenju heillega byggð frá fyrstu tíð kaupstaðarins.

Í bæklingnum "Frá torgi til fjöru" Söguganga um Akureyri (útgefinn 2011) má rölta um þennan gamla bæjarhluta og fræðast um sögu valdra húsa á þessu svæði auk þess að skoða söguvörðurnar - fræðsluskilti sem segja sögu húsa og byggðar á svæðinu.

Í innbænum eru líka mörg söfn og hús sem taka fyrir sögu bæjarins með mismunandi hætti og sem skemmtilegt er að heimsækja.  

Sjá nánar í reitnum hér til hliðar.